valitor











































Lesa frétt
11.3.2010

Hulda með lágmark á HM unglinga þegar hún stökk 3,95 m.

Hulda Þorsteinsdóttir stökk á 3,95 m á innanfélagsmóti ÍR í Laugardalshöll  í dag, 11. mars. Hulda hefur bætt sig vel í vetur en vantað herslumuninn þar til í dag á að ná 3,95 m sem er lágmark á HM unglinga sem haldið verður í Kanada í júlí sumar. Hulda hefur æft undir leiðsögn methafans Þóreyjar Eddu Elísdóttur og er það samstarf farið að skila miklum árangri. Næsta takamark Huldu er að rjúfa 4 m múrinn en þess má geta að hún átti góðar tilraunir við 4,05 m á þessu móti. Hulda verður 19 ára á árinu.