valitor











































Lesa frétt
10.3.2010

Gunnar Páll sótti þjálfararáðstefnu BMC í Coventry.

Má nefna Trevor Painter þjálfara 800 m hlauparans Jenny Meadows og George Gandy sem þjálfaði Seb Coe og þjálfar í dag 1500 m hlauparann Lisu Dobriesky. Steve Cram fyrrverandi heimsmeistari og heimsmethafi hélt aðal fyrirlesturinn þar sem hann fór yfir sinn feril og um leið voru sýndar myndir frá hlaupum þar sem hann varð heimsmeistari í 1500 m og þegar hann setti heimsmet í sömu grein. Gunnar Páll, einn af þjálfurum ÍR sótti námskeiðið ásamt Mörthu Ernstsdóttur. Að sögn Gunnars Páls getum við sótt mikinn styrk til BMC, t.d. með þátttöku í fræðslustarfi, hlaupum sem þeir skipuleggja og æfingahelgum fyrir unga hlaupara. Formaður BMC var mjög jákvæður á að íslenskir hlauparar nýttu sér kerfi BMC.