valitor











































Lesa frétt
7.3.2010

Stefán Hallgrímsson í 3. sæti í fimmtarþraut á HM innanhúss.

Stefán Hallgrímsson varð í 3. Sæti í flokki 60-65 ára á Heimsmeistaramóti öldunga innanhúss í Kamloops BC.  í Kanada. Stefán hlaut alls 3972 stig. Þrautina sigraði John Hawkins frá Kanda með 4090 stig, í öðru sæti var Valdis Lela Lettlandi með 4048 stig. Það var því mjótt á munum en þessir 3 íþróttamenn skiptust á að vera í efstu sætunum í  hverri grein.

Í 60m grind hljóp Stefán á 10.25 sek og sigraði, hann var 3. í hástökki með 1.52m, 3. í langstökki með 4,58m, 2. í kúluvarpi með 11.65m og að lokum sigraði Stefán 1000m hlaupið á 3:33.49 mín.

Til hamingju Stefán flottur árangur.