6.3.2010
Reykjavíkumeistaramót 15 ára og eldri:
Á Reykjavíkurmeistaramóti 15 ára og eldri lönduðu liðsmenn ÍR 22 Reykjavíkurmeistaratitlum auk fjölda silfur- og bronsverðlauna . Töluvert af bætingum leit dagsins ljós. Fyrst ber að nefna árangur Heklu Rúnar Ámundadóttur sem kastaði 3 kg kúlunni 12.12 m og bætti sig um ½ meter. Árangurinn er viðmið í Afrekshóp Ungmenna FRÍ. Aðrir sem bættu sig voru Arna Stefanía Guðmundsdóttir í langstökki þegar hún stökk 5.20m, Arnar Orri Sverrisson í 800m 2:07.60 mín og 24,62 sek og Kolbeinn Stefánsson sem bætti sig í 800m hlaupi, hljóp á 2:08,64 mín og bætti sig um 2 ½ sek.
Þeir sem urðu Reykjavíkurmeistarar voru:
Arnar Orri Sverrisson 15-16 ára 200m, 400m, 800m, hástökk
Björn Jón Bragason Karlar 400m
Börkur Smári Kristinsson Karlar Stangarstökk
Guðni Þór Guðnason Sveinar Kúluvarp
Ívar Kristinn Jasonarson Karlar Langstökk
Juan Ramon Borges Bosque Karla 60m, 200m
Leó Gunnar Víðisson Sveinar Stangarstökk
Vigfús Dan Sigurðsson Karlar Kúluvarp
4 x 200m boðhlaup Karla
Heimir Þórisson Karla Hástökk
Arna Stefanía Guðmundsdóttir Meyjar Langstökk
Bogey Ragnheiður Leósdóttir Meyjar Stangarstökk
Fríða Rún Þórðardóttir Konur 3000m
Heiður Þórisdóttir Konur Þrístökk
Hekla Rún Ámundadóttir Meyjar Kúluvarp
Helga Þráinsdóttir Konur Hástökk
Hulda Þorsteinsdóttir Konur Stangarstökk
Kristín Lív Svabo Jónsdóttir Konur 200m, hástökk
Á mótinu hljóp Sigurbjörn Árni Arngrímsson HSÞ 1500m á 1:51.47 mín en þetta er annar besti tími Sigurbjörns og sjötti besti tími Íslendings í greininni innanhúss. Til hamingju Bjössi.