valitor











































Lesa frétt
4.3.2010

Fjölmennum aðalfundi frjálsíþróttadeildarinnar lokið

Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar ÍR fyrir árið 2009 var haldinn í Laugardalshöllinni í kvöld. Fjölmenni var, en yfir 50 manns sátu fundinn. Auk venjulegrar aðalfundarstarfa þar sem viðamikil skýrsla um starfið árið 2009 var flutt, var formaðurinn Margrét Héðinsdóttir endurkjörin auk stjórnar og varastjórnar en hana skipa Fríða Rún Þórðardóttir varaformaður, Helga Jensen gjaldkeri, Bryndís Ernstsdóttir meðstjórnandi, Ásgeir Baldur Böðvarsson meðstjórnandi. Varastjórn; Sigrún Kristín Barkardóttir, Jóhannes Freyr Baldursson.

Gestir fundarinns voru þau Sigrún Gréta Helgadóttir íþróttafulltrúi ÍR, Hörður Heiðar Guðbjörnsson framkvæmdastjóri ÍR og Jónas Egilsson framkvæmdastjóri FRÍ.




Veittar voru viðurkenningar fyrir íþróttaárangur ársins 2009 og hlutu eftirfarandi viðurkenningar.

 

Frjálsíþróttakonan            Jóhanna Ingadóttir

Frjálsíþróttakarlinn          Einar Daði Lárusson

Kvenstökkvari ársins       Jóhanna Ingadóttir

Karlstökkvari ársins         Einar Karl Hjartarson

Kvenhlaupari ársins         Fríða Rún Þórðardóttir

Karlhlaupari ársins           Þorbergur Ingi Jónsson

Karlhlaupari ársins          Einar Daði Lárusson

Kvenkastari ársins            Sandra Pétursdóttir

Karlkastari ársins              Guðmundur Sverrisson

Kvenskokkari ársins         Sif Jónsdóttir

Karl skokkari ársins          Sigurjón Sigurbjörnsson

Mestu framfarir                  Björn Jón Þórsson

Mestu framfarir                  Jóhanna Ingadóttir

Öldungur ársins                  Fríða Rún Þórðardóttir

Efnilegust 15-18 ára         Hulda Þorsteinsdóttir

Efnilegastur 15-18 ára    Snorri Sigurðsson

Efnilegust 11-14 ára         Arna Stefanía Guðmundsdóttir

Efnilegastur 11-14 ára    Arnar Orri Sverrisson

Frjálsíþróttadeildin heiðraði auk þessa Þórdísi Gísladóttur vegna viðurkenningarinnar sem hún hlaut sl. haust þegar hún var valin sú kona sem mest hefur lagt af mörkum til frjálsíþrótta á Evrópumælikvarða.