2.3.2010
Reykjavíkumeistaramót 11-14 ára:
Margir voru að keppa í fyrsta sinn og augljóst var að leikgleðin réði ríkjum þrátt fyrir harða keppni í mörgum greinum. Það er mikilvægt að hægt sé að skapa verðug verkefni fyrir þennan aldurshóp, ekki það að keppnin skiptir öllu máli, hún kryddar hversdaginn og dregur að foreldra, ömmur, afa og aðra aðstandendur sem efalaust gegna lykil hlutverki í íþróttaiðkun barna á þessum aldri.
Þeir sem urðu Reykjavíkurmeistarar voru:
Stefanía Ásta Karlsdóttir 11 ára 60m
Ingibjörg Dana Vignisdóttir 11 ára 800m, langstökk
Margrét Hlín Harðardóttir 11 ára Hástökk
Árni Haukur Árnason 11 ára 60m, langstökk
Aníta Birna Berndsen 12 ára 60m
Ásta Margrét Einarsdóttir 12 ára 800m
Thelma Lind Kristjánsdóttir 13 ára 60m, langstökk
Rannveig Rögn Leifsdóttir 13 ára 800m, hástökk, kúluvarp
Eva Bergrín Ólafsdóttir 13 ára 60m grind
Júlíus Ingi Guðmundsson 13 ára 60m, 800m
Anthony Þórir Santoz 13 ára 60m grind, hástökk, langstökk, kúluvarp
Sigríður Karlsdóttir 14 ára 60m
Aníta Hinriksdóttir 14 ára 800m, 60m grind
Bogey Ragnheiður Leósdóttir 14 ára Langstökk, kúluvarp
Gréta Sóley Arngrímsdóttir 14 ára Hástökk
Gunnar Ingi Harðarson 14 ára 60m, 60m grind, hástökk, langstökk
Skúli Gunnarsson 14 ára 800m
Hilmar Örn Jónsson 14 ára Kúluvarp
Til hamingju ÍR-ingar