Lesa frétt
2.3.2010

Ný í afrekshóps og úrvalshóp Ungmenna FRÍ

Arnar Orri Sverrisson (1995) náði lágmarki í 400m inn í Afrekshóp ungmenna FRÍ þegar hann hljóp á 52.58 sek í Bikarkeppni FRÍ á dögunum.  Lágmarkið er 54,00 sek og Arnar Orri því langt undir lágmarkinu.

Gunnar Ingi Harðarson (1996) og Bogey Ragnheiður Leósdóttir (1996) eru ný í úrvalshóp ungmenna FRÍ. Bogey fyrir árangur sinn í stangarstökki 3.05m og Gunnar Ingi í 60 m grindahlaupi 9.10 sek sem hann náði á Reykjavíkurmeistaramóti 11-14 ára. Til hamingju með árangurinn.