18.6.2013
Þráinn Hafsteinsson
Þrettán ÍR-ingar keppa í landsliði Íslands í frjálsíþróttum sem tekur þátt í Evrópukeppni landsliða um næstu helgi í Slóvakíu. Alls skipa 32 íþróttamenn íslenska liðið og hlutur ÍR-inga því 40,6%. Ekkert lið hefur átt stærri hlut í landsliðinu frá og með árinu 2008. Þá veður að leita aftur til gullaldaráranna 1975-1985 til að sjá sambærilegan fjölda í landsliðinu frá ÍR.
14.6.2013
Guðbjörg Lilja Svansdóttir

Evrópukeppni landsliða í 3. deild fer fram dagana 22. - 23. júní í Banska Bystrica í Slóvakíu. Auk Íslands keppa þar lið frá Albaníu, Andorra, Armeníu, Azerbaijan, Bosníu og Herzegoviniu, Makadóníu, Georgíu, Litháen, Luxembourg, Möltu, Moldóvu, Montenegro, Sameinað lið smáþjóða og Slóvakíu.
Í dag tilkynnti FRÍ val þeirra sem munu keppa fyrir Íslands hönd, í þeim hópi eru margir ÍR ingar. Þetta eru: Ívar Kristinn Jasonarson, Snorri Sigurðsson, Hlynur Andrésson, Arnar Pétursson, Helgi Björnsson, Mark johnson, Guðmundur Sverrisson, Hrafhild Eir Hermóðsdóttir, Aníta Hinriksdóttir, Bogey Ragnheiður Leósdóttir, Dóróthea Jóhannesdóttir, Sandra Pétursdóttir og Björg Gunnarsdóttir. Að auki fer Alberto Borges sem einn af þjálfurum landsliðsins.
Það verður spennandi að fylgjast með þessum glæsilega hópi. Við óskum þeim góðrar ferðar og góðs gengis.
12.6.2013
Fríða Rún Þórðardóttir
Veðurguðirnir sendu hið ágætasta veður á Laugardalsvöllinn í kvöld enda fór 71. Vormót ÍR fram eins og best verður á kosið. Keppnin er mikilvægur liður í vali á landsliði Íslands fyrir Evrópukeppni landsliða sem fram fer um aðra helgi og því var hart barist um hvert sæti, sekúndu og centimeter.
Góður árangur náðist í mörgum greinum. Hæst ber líklega árangra eftirtaldra: Hilmars Arnar Jónssonar í sleggjukasti en Hilmar kastaði 5 kg sleggjunni 73,95m sem er met í flokki 16-17 ára og 10. lengsta kast í heiminum í hans aldursflokki. Himar kastaði einnig gríðarlangt með karlasleggjunni heila 57,91 m og toppaði síðan árangur sinn með 5 kg kúluni 17.28 m. Hafdísar Sigurðardóttur í langstökki þegar hún jafnaði glænýtt Íslandsmet sitt 6.36m en meðvindur var aðeins of mikill. Einnig árangur Anítu Hinriksdóttur í 800m, 2:03,42 mín og Þórdísar Evu Steinsdóttur í sömu grein en hún gerði sér litið fyrir og setti met í flokki 13 ára stúlkna, 2:16,58 mín
ÍR-ingar áttu marga á palli og verður spennandi að sjá hversu margir ÍR-ingar keppa fyrir Íslands hönd um aðra helgi.
11.6.2013
Margrét Héðinsdóttir
Í kvöld fór fram á Laugardalsvelli Vormót Fjölnis. Keppt er í aldursflokkum 11 - 15 ára á mótinu og ÍR - ingar fjölmenntu á mótið sem fram fór í roki og rigningu og uppskáru ríkulega en 15 ÍR - nældu sér í verðlaun á mótinu.
Þeir sem voru í verðlaunasætum voru eftirfarandi:
10.6.2013
Margrét Héðinsdóttir
Eins og undanfarin sumar stendur deildin að Fjörkálfanámskeiði ásamt Knattspyrnudeild ÍR. Í morgun mætti stór hópur krakka á fyrsta degi námskeiðsins ásamt foreldrum sínum í ÍR - heimilið. Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir mun sjá um frjálsíþróttahluta námskeiðsins og hefur þrjú ungmenni sér til að stoðar.
Í morgun byrjaði líka sumarnámskeið í frjálsum fyrir 11 til 13 ára krakka á ÍR - svæðinu. Það er Helgi Björnsson, þjálfari Breiðholsthópsins sem sér um það námskeið. Þetta námskeið er fyrir krakka sem hafa verið að æfa frjálsar og verður fjölbreytt og skemmtileg blanda af þrjálfun og fróðleik.
Það verður því líf og fjör í frjálsum á ÍR - svæðinu næstu vikurnar.
9.6.2013
Fríða Rún Þórðardóttir
Arna Stefanía Guðmundsdóttir kom rétt í þessu í mark í 800m hlaupinu, síðustu grein sjöþrautarinnar á tímanum 2:20.19 mín og 5190 stigum ríkari. Hún er þar með komin í hóp keppenda á EM 20 ára og yngir í sjöþraut. Frábær helgi að baki, og spennadi tími framundan hjá Örnu og hennar þjálfara, Þránni Hafsteinssyni, við að fínpússa örfáa þætti fyrir EM sem fer fram í Riet á Italíu 17-21 júlí. Til Hamingju Arna !
Sveinbjörg Zophoniasdóttir á enn eftir óloknum sínum 800m og karlarnir eru enn í stangarstökki en Ásgerður Jana Ágústsdóttir hafnaði í 8. sæti af 12 keppendum í flokki 18 ára og yngri.
9.6.2013
Fríða Rún Þórðardóttir
Dagurinn byrjar vel hjá Örnu Stefaníu en hún stökk 5.45 í langstökkinu og náði þar 3 gildum stökkum. Í spjótkastinu kastaði hún 38,98 m en eftir spjótkastið er hún í 2. sæti með 4369 stig. Stefnir hún óðfluga á lágmark á EM 18- 20 ára og yngri en lágmarkið er 5200 stig. Til þess þarf hún að hlaupa 800m á 2:24,70 mín
Sveinbjörg Zophoniasdóttir leiðir keppnina í ungkvennaflokki eftir langstökkið með um 150 stiga forystu, María Rún gerði því miður allt ógilt í langstökkinu.
Ásgerður Jana Ásgeirsdóttir er í 4. sæti og Ingi Rúnar 4.