Anna Björg Guðjónsdóttir
Anna Björg Guðjónsdóttir er 21 árs dansleiðbeinandi. Hún hóf að æfa samkvæmisdans við 3 ára aldur og hefur dansað síðan þá. Hún hóf dansnám sitt í Dansskóla Hermanns Ragnarssonar en hefur síðan æft í Danssmiðjunni, Dansíþróttafélaginu Hvönn og nú síðast í Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Auk þess að æfa samkvæmisdans lagði hún um tíma stund á jazzballet og freestyle. Hún mun sjá um þjálfun yngri hópanna í vetur auk þess að þjálfa keppnishópana á móti Sigrúnu Tinnu. Anna Björg er laganemi á 2. ári við Háskólann í Reykjavík.