n1_logo_grunni



Lesa frétt
16.3.2012

Sumarvinna hjá ÍR fyrir 15 ára og eldri.

IMG_1962Hægt er orðið að sækja um sumarstörf hjá ÍR og hvetjum við fólk til að drífa í því að hafa samband.

17 ára og eldri smella hér til að fara í umsóknarferlið hjá borginni. Það er undir sumarstörf - "skráning umækjenda hjá íþrótta- og æskulýðsfélögum". Umsækjendur þurfa einnig að hafa samband við Sigrúnu Grétu íþróttastjóra ÍR í síma 587-7080.

15-16 ára smella hér á síðu Vinnuskóla Reykjavíkur en fylgjast þarf með á síðunni hvenær opnar fyrir umsóknir.

Nauðsynlegt er fyrir alla sem vilja sumarvinnu hjá ÍR að sækja um hjá borginni. Þeir sem ekki hafa aðgang að netinu geta kíkt í heimsókn í Hitt húsið, Pósthússtræti 3-5 og nýtt tölvur sem þar eru að finna.