Lesa frétt
12.9.2011

Skráningardagur 13.september kl.16-20

Nú hafa æfingar staðið í u.þ.b. tvær vikur hjá deildum félagsins og komið er að því að forráðamenn gangi frá skráningu og greiðslu. Skrifstofa ÍR ætlar að vera fólki innan handar þriðjudaginn 13.september kl.16:00-20:00 á 2.hæð ÍR heimilis. Hvetjum við fólk til að nýta sér þessa þjónustu. Greiðslukort eða reiðufé þarf að hafa við hendina. Þau sem vilja gera þetta sjálf á netinu og hafa kreditkort við hendina geta farið inn á slóðina; https://ir.felog.is og eftirfarandi pdf skjal er með ágætis leiðbeiningum hvernig (smellið HÉR til að nálgast skjalið).
Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að  geta skipt upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Einnig reiknast sjálfkrafa systkinaafsláttur af verði hjá seinna barni. 
Æfingatöflur eru klárar og eru birtar á heimasíðunni.