Lesa frétt
5.1.2012
Skráning iðkenda komin á fullt
Núna eru æfingar að hefjast aftur eftir jólafrí og hægt er að skrá og borga á námskeiðin á skráningarsíðu okkar ( muna samþykkja skilmála fyrst ).
Greiðslur með Frístundakorti eru samtengdar kerfinu svo að það er létt mál að ráðstafa styrknum og fara svo aftur inní skráningarsíðuna og haka aftur við Frístundakortið og klára greiðsluferlið.
Greiðslur með kreditkorti og Frístundakorti gerið þið sjálf. Ef greiða á með öðrum hætti þarf að hafa samband við skrifstofu ÍR á skrifstofutíma kl. 10:00 – 16:00 s. 587 7080 / 587 7090.
Mjög góðar leiðbeiningar um skráningarferlið eru á heimsíðu ÍR.
Sérstakur skráningardagur fyrir þau ykkar sem þurfið aðstoð við skráningu verður hér í ÍR heimilinu í 16. janúar kl. 18 – 20.
Foreldrar, fjölmennum svo á hinn margumtalaða Þorrafagnað sem haldinn verður í Íþróttahúsi Seljaskóla 28. janúar n.k. Frábærir skemmtikraftar halda uppi fjörinu og maturinn frá Múlakaffi klikkar ekki.
Við hvetjum alla foreldra til að taka kvöldið frá og skemmta sér í góðum hópi ÍR - inga.
ATH. 18 ára aldurstakmark.
Mjög mikilvægt er að gengið sé sem fyrst frá skráningu, ef ekki er búið að ganga frá skráningu er ekki mögulegt að skrá viðkomandi iðkenda á mætingalista eða taka þátt í keppni á vegum félagsins. Vinsamleg tilmæli til forráðamanna eru að skrá iðkendur fyrir 20. janúar nk.