Lesa frétt
22.11.2011

Áhugaljósmyndari eða atvinnuljósmyndari óskast

Miklar og góðar minningar fást í ljósmyndum og er mikilvægt fyrir sögu ÍR að myndasöfn séu varðveitt á skrifstofu félagsins. Til þess þarf ÍR að fá sendar til sín góðar myndir, en frá og með deginum í dag þarf félagið að fá "ljósmyndara" til að taka myndir á ýmsum viðburðum. Það gæti verið einn í hverri deild eða einn sem hefði áhuga á að mæta á viðburði fleirri deilda til þess eins að fylgjast með og  taka ljósmyndir.
Það sem ÍR gæti boðið í staðin er í það minnsta frímiðar á viðburði hjá félaginu, t.a.m. er stórviðburður í vændum þegar ÍR heldur Þorrafagnað í upphafi nýs árs.
Áhugasamir hafi samband við Sigrúnu íþróttafulltrúa á skrifstofu ÍR í síma 587-7080