Lesa frétt
11.1.2010
ÍR endurnýjar samninga
Nú hefur ÍR endurnýjað samninga við tvo af þeim aðilum sem samið var við árið 2009 en þetta er Sporthúsið og Olís.
Eldri iðkendur félagsins hafa því tækifæri á að æfa í Sporthúsinu með sama sniði og árið 2009. Þjálfarar eða stjórnarfólk er beðið um að panta fyrir viðkomandi aðila í gegnum Hörð framkvæmdastjóra og Hörður sendir beiðni áfram í Sporthúsið. Þess skal getið að Hörður mun fylgjast með því að þeir sem fá kort séu að nýta það, annars geta þeir aðilar sem ekki nýta kortið misst af áframhaldandi styrk.
Samningur við Olís gildir fyrir árið 2010 og er hann með sama sniði og árið 2009. Við hvetjum því alla ÍR-inga að beina viðskiptum sínum til Olís. Þeir hafa marga möguleika þegar kemur að fjáröflunarleiðum og bið ég ykkur um að vera í sambandi við Ingólf markaðsfulltrúa ÍR hvað það varðar.
Hörður, framkvæmdastjóri