Lesa frétt
18.11.2009
Íþróttanámskeið -nýjung

Nú er að fara af stað íþróttanámskeið í ÍR á vegum Björns einkaþjálfara og 4.Dan júdóþjálfara. Áhersla verður lögð á "fullorðins íþróttir" sem allir geta tekið þátt í, ungir sem aldnir, konur jafnt sem karlar. Æfingarnar verða blanda af leikfimi, þreki, fimi, fallæfingum og sjálfsvörn. Iðkendur ná því að auka þrek sitt og þol með skemmilegum og fjölbreyttum æfingum.
Tímarnir verða mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl.07:00-08:00 og kl.12:00-13:00.
Æfingatímabilið er frá og með 23.nóvember, til og með 18.desember.
Verð 12.000 kr. á mann.
Deildir innan ÍR geta samið sérstaklega við Björn um tímasetningar og hópafslátt í síma 896-3035 eða e-mail
judoka@simnet.is