Lesa frétt
16.11.2009

Lottó Open 2009


Laugardaginn 7.nóvember síðastliðinn var hin árlega Lottó keppni haldin í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Kepnnin var með öllu móti glæsileg og öll bestu danspör landsins voru þar mætt til leiks.
Fyrir hönd Dansdeildar ÍR kepptu að þessu sinni tvö pör.
Erna Margrét og Lilja Rós kepptu í flokki Barna II A/D og komust inn í úrslit í standard þar sem þær hrepptu áttunda sæti.
Einnig tóku þátt Alexandra Líf og Karólína Rut í flokknum Ungingar II A/D. Þær höfnuðu í 3.sæti í latin og hrepptu svo gullið í standard.
Þetta er frábær árangur hjá stelpunum og óskum við þeim hjartanlega til hamingju.