Lesa frétt
26.12.2008

Kjör á íþróttamanni ÍR

Stjórn Dansdeildar ÍR hefur tilnefnt Kristínu Filippíu Stefánsdóttur og Kristján Þór Sigurðsson til kjörs á íþróttamanni ÍR.  Kristín og Kristján eru áhugasöm, metnaðargjörn, vinna ávallt vel og eru að ná stöðugum framförum í dansinum. Stjórn dansdeildar taldi að við kjör íþróttamanns hjá ÍR, mætti horfa á fyrirmynd og eljusemi, kurteisi og virðingu sem afar góðan valkost.
Kjör á íþróttamanni ÍR fer fram laugardaginn, 27. desember kl. 13:00 í ÍR heimilnu.