Lesa frétt
10.6.2009

ÍR fær styrk frá Velferðarsjóði barna

Styrkurinn frá Velferðasjóði barna kemur sem niðurgreiðsla til foreldra barna á  sumarnámskeiðum ÍR. Hvert barn fær styrkinn einu sinni yfir sumarið. Styrkurinn tekur gildi frá og með næsta námskeiði. Ekki er hægt að nota styrkinn aftur í tímann. Þeir sem þegar hafa greitt fyrir næsta námskeið fá endurgreiddan mismuninn.
Fjörkálfanámskeið í frjálsum og fótbolta kostar 7.500,- (áður 10.000,-). Hvert námskeið er í 2 vikur og næsta námskeið byrjar 22.júní.  
Heill dagur í viku á Íþrótta- og leikjanámskeiði kostar 2.500,- (áður 7.500,-). Hálfur dagur í heila viku kostar 1.400,- (áður 3.900,-). Næsta námskeið byrjar mánudaginn 15.júní.
Þar sem næstu námskeið eru að fyllast eru foreldrar beðnir um að skrá barnið með því að hringja í síma 587 7080 / 587 7090 eða með því að mæta á skrifstofu ÍR að Skógarseli 12.