Lesa frétt
18.12.2008

Góður árangur hjá dansdeildinni á Lottó Open

Kristófer Aron og Elva RánÞann 8. nóvember sl. var haldin hin árlega Lottó Open danskeppni. Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar stóð að keppninni nú sem endranær en keppnin var haldin í 17. sinn.

Fjölmörg pör frá dansdeild ÍR tóku þátt í keppninni og stóðu sig með ágætum. Tvö danspör urðu tvöfaldir Lottómeistarar, þ.e. unnu bæði keppnina í ballroom og latin dönsum. Pörin sem um ræðir eru Bjarni Sævar Sveinsson og Júlíana Borg Stefánsdóttir sem keppa í Börn II A og Kristófer Aron Garcia og Elva Rán Oddgeirsdóttir sem keppa í Unglingar II K.