Lesa frétt
5.9.2011
Dansdeild ÍR býður ykkur velkomin í hópinn.
Barnadansar eru kenndir alla laugardaga frá kl. 10 fyrir börn frá 3ja ára aldri og eftir því sem þau eldast þá bætast við frumspor í Valsi, Cha cha og fleiri dönsum. Skemmtilegt jólaball með foreldrasýningu og sveinka er haldið í lok haustannar og vorönn ljúkum við með grímuballi og foreldrasýningu.
6 – 8 ára börnin fá að auki að taka þátt að vori í sýningarhópi á dansmóti og 9 – 12 ára fara sýna og keppa dansmótum þegar þau eru tilbúin til þess.
Keppnishópar æfa 3x í viku og fara á 4 – 6 mót á vetri. Farið verður í æfingabúðir eina helgi og sprellað á skautum og sundi.
Fullorðinshóparnir eru 3 og eru æfingar 1 sinni í viku. Byrjendum er fylgt í gegnum fyrstu sporin og eftir því sem færnin eykst þá styrkist sjálfstraustið og gleðin verður alls ráðandi. Framhald 1 er fyrir þau sem treysta sér í áframhaldandi viðbót við dansana. Framhald 2 er svo fyrir pör sem stefna á keppni í mótum. Slegið verður upp dansiballi í lok annar með öllum fullorðinshópum.
Latin fittness er nýlunda hjá okkur og er fín leið til að dansa sig í form. Hress suðræn latin tónlist og taktar hrista húsið í klukkutíma 2 sinnum í viku. Zumbapartý verður svo á miðjum vetri. Tímarnir eru ætlaðir öllum 18 ára og eldri.
Hittumst hress í vetur.