Lesa frétt
10.1.2011

Íþróttamaður- og kona ÍR 2010

Á sunnudaginn fór fram kjör á íþróttamanni- og konu ÍR fyrir árið 2010. Einnig voru bestu íþróttamenn- og konur hverra deilda verðlaunuð fyrir frammistöðu sína á árinu 2010.  
Róbert Dan Sigurðsson var kjörinn íþróttamaður ÍR 2010 og Kristín Birna Ólafsdóttir íþróttakona ÍR 2010.

Auk þeirra Róberts og Kristínar hlutu eftirtaldir aðilar tilnefningu:

Dansdeild: Erna Margrét Sigurðardóttir og Lilja Rós Kristbjörnsdóttir
Frjálsíþróttadeild: Kristín Birna Ólafsdóttir og Snorri Sigurðsson
Handknattleiksdeild: Silja Ísberg og Arnór Stefánsson
Júdódeild: Ashley María Friðsteinsdóttir og Kjartan Magnússon
Keiludeild: Ástrós Pétursdóttir og Róbert Dan Sigurðsson
Knattspyrnudeild: Tinna Karen Gunnarsdóttir og Karl Brynjar Björnsson
Körfuknattleiksdeild: Bergdís Sigurðardóttir og Þorgrímur Kári Emilsson
Skíðadeild: Helga María Vilhjálmsdóttir og Einar Kristinn Kristgeirsson
Taekwondodeild: Sigríður Hlynsdóttir og Jakob Samúel Antonsson



Aðeins um Íþróttamann- og konu ÍR 2010
Róbert Dan Sigurðsson
Róbert Dan er 22 ára og fyrir all nokkru komin í fremstu röð keilara á Íslandi.  Helstu afrek Róberts á árinu 2010 eru:
Íslandsmót einstaklinga                  5. Sæti
Íslandsmót í Tvímenning                 2. Sæti
Íslandsmót Para                              Íslandsmeistari
Reykjavíkurmót einstaklinga         Reykjavíkurmeistari
Íslandsmót liða                                3. Sæti  ÍR-PLS-
Á uppgjöri síðasta keppnistímabili í 1. deild karla sem lauk í maí 2010 kom í ljós að Róbert átti 3. Hæsta meðaltal í deildinni 211,9 stig, hann var með flestar fellur að meðaltali í leik 6,63 og hann átti hæstu seríu vetrarins 792 stig sem gera 264 stig að meðaltali í leik.
Róbert tók þátt í verkefnum landsliðs Íslands á árinu (HM í Þýskalandi).  Róbert hefur æft keilu frá unga aldri og hefur góða ástundun og er góð fyrirmynd annarra keilara.

Kristín Birna Ólafsdóttir
Kristín Birna hóf utanhússkeppnistímabilið með áherslu á 400m grindahlaup og náði lágmarki snemma í júní lágmarki til keppni í þeirr grein á  Evrópumeistaramótinu sem fram fór í Barcelona í ágúst.  Kristín er fyrsti ÍR-ingurinn í 8 ár til að að ná lágmarki til keppni á EM, HM eða  ÓL.  Með landsliði Íslands keppti Kristín í Evrópukeppni landsliða í 100m og 400m grindahlaupi og 4x100m og 4x400m boðhlaupi.  Hún var ein þriggja Íslendinga sem sigraði í sinni grein en þrettán þjóðir áttu lið í riðlinum sem Ísland  tók þátt í og hver sendi einn fulltrúa í hverja grein.  Kristín Birna var síðan burðás í sigrum ÍR-liðsins í stigakeppni Meistaramóts Íslands og Bikarkeppni FRÍ 1. deild sem fram fóru í júlí og ágúst.  Kristín Birna vann öll 100m grindhlaup og 400m grindahlaup sem hún tók þátt í hér heima á keppnistímabilinu og varð bæði Íslands- og Bikarmeistari með yfirburðum í þessum greinum.  Í Bikarkeppni FRÍ hljóp Kristín í báðum boðhlaupssveitum ÍR sem settu Íslandsmet í 4x100m og 1000m boðhlaupum.  Á Evrópumeistaramótinu var Kristín ein af sex Íslendingum sem náðu lágmörkum til keppni og var aðeins 3/100 úr sekúndu frá því að bæta árangur sinn á mótinu sjálfu.  Hún fór næst íslensku keppendanna að bæta sinn fyrr árangur á EM og endaði í 26. sæti í 400m grindahlaupinu.  Kristín Birna lauk utanhússkeppnistímabilinu með því að ná sínum næstbesta árangri í sjöþraut frá upphafi og ná 2. sæti í þeirri keppni sem var Sænska meistaramótið.  Kristín er hæfileikarík, forkur dugleg og frábær fyrirmynd hvar sem hún fer.  Kristín stefnir nú ótrauð á þátttöku í Ólympíuleikunum 2010.