Lesa frétt
16.9.2010

Kærleiksganga næsta laugardag kl. 14

Eins og allir vita þurftu tveir Íslendingar að flýja land undan ofsóknum og árásum á heimili þeirra síðastliðinn sunnudag. Þessir feðgar eru góðir og gegnir ÍR-ingar og við getum ekki sætt okkur við að svona lagað viðgangist í okkar samfélagi. Alberto hefur þjálfað hjá okkur í Frjálsíþróttadeildinni í fjölda ára við góðan orðstýr, enda gull af manni og vill hvers manns vanda leysa. Ramon hefur æft með okkur lengi og hann er einn af  okkar sigursæla frjálsíþróttaliði og unglingalandsliðsmaður í frjálsum. Við viljum öll fá Alberto og Ramon aftur til leiks og starfa og það vilja fleiri.
Næsta laugardag verður kærleiksganga þeim til stuðnings. Lagt verður upp frá Skólavörðuholtinu og gengið niður Skólavörðustíg. Gangan fer af stað kl. 14:00. Á Ingólfstorgi verður svo dagskrá. Við hvetjum alla ÍR-inga til að koma og taka alla með sér alla sem ekki sætta sig við að góðir og gegnir Íslendingar séru hraktir úr landi fyrir hörundslitinn einan saman.