Lesa frétt
13.12.2010

Dansdeild ÍR fagnar tíunda starfsári sínu

Í tilefni þess að tíunda starfsár dansdeildar ÍR er að renna upp býður dansdeild ÍR öllum pörum sem skrá sig sem iðkendur hjá dansdeild ÍR 50% afslátt af æfingagjöldum ef þau skrá sig   saman. *

Dansdeild ÍR er stolt af því að geta boðið upp á sama verð og í fyrra. Það var ódýrt að æfa dans hjá okkur en ef par skráir sig saman lækka æfingagjöldin um 50% að auki.

Hjá okkur starfa frábærir þjálfarar og góða skapið er ávalt nærri. Eins og alltaf er gleði og gaman í fyrirrúmi. Dansdeildin byrjar laugardaginn 4.september.

*Þetta á við um iðkendur eldri en þriggja ára. Tilboðið gildir ekki um Breik, Hiphop, Freestyle og keppnishópa.