Lesa frétt
17.2.2009

Kynning á væntanlegri íþróttamiðstöð Íþróttafélags Reykjavíkur

Þriðjudaginn 17.febrúar næstkomandi kl.20.00 verður nýtt íþróttamannvirki ÍR kynnt í ÍR-heimilinu að Skógarseli 12.
ASK arkitektar kynna vinningstillögu sína í samstarfi við forráðamenn ÍR og Reykjavíkurborg. Þess má geta að þetta er frumhugmynd sem á eftir að þróa enn frekar í samstarfi við ÍR.
Það væri okkur sönn ánægja ef þú sæir þér fært að mæta og kynna þér hvers konar mannvirki er verið að hanna.

F.h. Íþróttafélags Reykjavíkur
Hörður Heiðar Guðbjörnsson
Framkvæmdastjóri