Lesa frétt
17.3.2010
Vorönnin langt komin og mikið að gerast !
Foreldrafundur var haldinn s.l. laugardag og mættu margir foreldrar.
Helgina 20. - 21. mars eru 6 - 9 ára stelpur að sýna í Íþróttahúsinu Smáranum ,Vals og Chacha og einnig keppa 2 pör frá okkur í Unglingar II A/D og óskum við þeim góðs gengis.
Farið var yfir klæðareglur DSÍ fyrir þau mót sem eftir eru og reglurnar
hér.
Páskafrí verður hjá Dansdeildinni frá 26. mars til 6. apríl og hefst kennsla aftur7. apríl.
Þá verður síðasti kennsludagur laugardaginn 17. apríl og
þann 24. apríl verður grímuball fyrir laugardagshópana 3 - 6 ára.
Eldri hópar og keppnispör ætla svo þann dag í sund saman og verður það auglýst betur síðar.
Helgina 1 - 2. maí verður svo síðasta mót vetrarins Íslandsmót með grunnaðferð.
ÍR - heimilið verður opið fyrir æfingar hjá keppnispörum frá 24. - 30. apríl efir nánari samkomulagi.