Lesa frétt
15.3.2010

Þrír þjálfarar hjá ÍR með erindi 16.mars fyrir aðra þjálfara félagsins

Þriðjudaginn 16.mars kl.20:00-21:30, býður ÍR upp á þrjú stutt erindi frá reyndum þjálfurum innan raða ÍR. Erindin fara fram í ÍR heimilinu.
Þessi erindi koma til vegna styrks sem þessir aðilar fengu úr Magnúsarsjóði til að fara á námskeið erlendis nú fyrr í vetur. Þau ætla að deila þekkingu sinni með okkur. Hvert erindi verður um 20 mín. og eftir þau skapast smá rúm fyrir fyrirspurnir og umræður.
Hvetjum við þjálfara og eldri iðkendur til að mæta.
Erindin eru eftirfarandi:
Gunnar Páll Jóakimsson: Þolþjálfun unglinga.
Fríða Rún Þórðardóttir: Næring fyrir keppni og næring í hópíþróttum.
Pétur Guðmundsson: Köst og meiðsl í olnboga og öxl.