Dansdeild ÍR
Dansdeild ÍR - fyrir stóra sem smáa
Dansdeild ÍR hefur aðstöðu í ÍR heimilinu að Skógarseli 12. Einnig er kennt í Breiðholtsskóla.
Deildin býður uppá:
Barnadansa
Suður-ameríska dansa
Standard dansa
Partý og tískudansa
Breakdans
Hip Hop
Dansnámskeið fyrir alla 3.ára og eldri
Börn
Unglingar
Fullorðnir
Dansdeild ÍR miðar við að kenna dansinn sem íþrótt fyrir alla og
hefur það að markmiði að bjóða góða danskennslu á lágmarksverði.
Sigrún Tinna Gunnarsdóttir er 22 ára dansleiðbeinandi. Hún hefur æft samkvæmisdansa frá því hún var lítil og hefur verið í keppnisflokki frá 14 ára aldri. Sigrún Tinna æfið með ÍR í fyrri tíð en hefur undanfarið veri að æfa í Hafnarfirði. Hún var aðstoðarkennari í Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar í tvo vetur 2007-2009 og hefur þar að auki verið af og til að aðstoða við kennslu í Hafnarfirði, þar sem hún hefur leyst Auði Haraldsdóttur af þegar hún er erlendis með keppnishópum og þess háttar.
Anna Björg Guðjónsdóttir er 21 árs dansleiðbeinandi. Hún hóf að æfa samkvæmisdans við 3 ára aldur og hefur dansað síðan þá. Hún hóf dansnám sitt í Dansskóla Hermanns Ragnarssonar en hefur síðan æft í Danssmiðjunni, Dansíþróttafélaginu Hvönn og nú síðast í Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar. Auk þess að æfa samkvæmisdans lagði hún um tíma stund á jazzballet og freestyle. Hún mun sjá um þjálfun yngri hópanna í vetur auk þess að þjálfa keppnishópana á móti Sigrúnu Tinnu. Anna Björg er laganemi á 2. ári við Háskólann í Reykjavík.
Natasha kennir break og hip hop dansa. Hún er þaulreyndur dansari og kemur með break og hip hopið beint frá götum New York borgar. Natasha hefur kennt "street dance" á Íslandi síðan 1998. Sjá nánar undir www.natasha.is
Dansið með okkur í vetur :)